Fimmtudagur 27.apríl 2006
Þennan góðviðrisdag var haldið vestur á Snæfellsnes til að taka þátt í öldungamóti í blaki í fyrsta sinn að vísu var þetta ekki í fyrsta sinn hjá Elsu í Dölum. Lagt var af stað frá Landsbankanum kl: 15:30 stundvíslega. Þær sem lögðu til bíla voru Steinunn Björg Elísdóttir á Toyota Land-cruser
og Guðrún Jónína Heimisdóttir á Volvo 90
. Aðrir sem fóru voru: Eyrún María Elísdóttir, Líneik Anna Sævarsdóttir, Hanna Kristín Hauksdóttir, Guðný Elísdóttir og Jóhanna Kristín Hauksdóttir. Við keyrðum syðri leiðina og vorum komnar til Ólafsvíkur kl: 01:30 sem sagt tók ferðalagið 10 klst með góðum matar-, kaffi- og pissistoppi. Það var stoppað reglulega til að draga í bílana og teygja úr sér. Veðrið var mjög gott á leiðinni og við allar mjög spennar að taka þátt. Við fengum skólastofu á annarri hæð í skólanum á Ólafsvík. Við bjuggum um okkur með þessum líka fínu vindsængum úr Rúmfatalegernum sem voru rúm 50 cm á hæð og 103 cm breiðar með sjálfvirkum mótor til að blása þær upp....bara snilld þessar vindsængur. Við áttum leik kl: 8 morguninn eftir. Við vissum að það átti eftir að hlægja mikið í þessari ferð en ekki svona mikið 


