Blogg
30.8.2009
Sandfellið.
Við fórum í berjamó í gær og komum heim með fullt af berjum sem búið er að sulta úr.
Gærdagurinn við Sandfellið.
8.8.2009
Sumar
Ég hélt að það væri sumar en þetta sumar minnir mig á haust nema kannski aðeins hlýrra. Það er búið að rigna svo mikið hér síðustu daga og nætur að ég man ekki lengi eftir öðru eins en í dag hefur verið mun þurrara. Annars er allt fínt að frétta, við hjónin erum að stansetja litla hjólhýsið sem foreldrari mínir notuðu hér áður fyrr, það er svo fínt og flott og fín stærð fyrir okkur. Pétur og Tinna fóru suður eftir Frönsku helgina og eru nú að skemmta sér á Dalvík en Örvar Ingi er enn hér hjá okkur. Melkorka fer nú bráðum að verða búin að vinna og fer þá í Menntaskólann á Egilsstöðum og ég fer að vinna eftir nokkra daga, Jóhannes alltaf að vinna hjá Jónasi og þar er sko nóg að gera.
Hefði bæði viljað vera á Gaypride hátíðinni í Rvk og á Dalvík en ég er bara heima og hleyp bara þeim mun meira í staðinn. Stefni á hálft maraþon eftir ár eða þannig. Ég verð að fara að vera duglegri að setja eitthvað hér inn.
Knús og kram á ykkur elskurnar.
Hefði bæði viljað vera á Gaypride hátíðinni í Rvk og á Dalvík en ég er bara heima og hleyp bara þeim mun meira í staðinn. Stefni á hálft maraþon eftir ár eða þannig. Ég verð að fara að vera duglegri að setja eitthvað hér inn.
Knús og kram á ykkur elskurnar.
clockhere
Flettingar í dag: 3
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 111
Gestir í gær: 43
Samtals flettingar: 430386
Samtals gestir: 165806
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 01:19:35

