Blogg

26.7.2009

Franska helgin.

Þá er Franska helgin senn á enda og mér fannst hún alveg frábær, hefur reyndar alltaf fundist þessi helgi skemmtileg en þessi helgi var sú skemmtilegasta að öllu leyti. Eins og alltaf á þessum helgum koma margir gestir til okkar og það er nú stór partur af programmet að eyða helgi saman í góðra vina hópi. Svo get ég montað mig af því að hafa hlaupið Fáskrúðsfjarðarhlaupið á flottum tíma og svo skellti maður sér í Minningarhlaupið morguninn eftir svo nú er ekki annað en að halda áfram að æfa sig og bæta tímann næst. Veðrið var fínt og mjög margt um gesti og gangandi, geggjuð helgi. Örvar, Pétur og Tinna kærasta Péturs fara ekki strax suður, ætla að vera á hótel mömmu aðeins lengur, gott að hafa þau. Melkorka Mjöll er búin að vera svakalega dugleg að vinna, bæði í frystihúsinu og svo á Sumarlínu.
Hafið það gott dúllurnar mínar.



...frúin að koma í mark í Fáskrúðsfjarðarhlaupinu...



...og að koma í mark í Minningarhlaupinu.


Skrifað 26.7.2009 kl. 23:09 af Jóhönnu H

Bein slóð á færslu

9 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

3.7.2009

Frábærir dagar.

Ég vil byrja á því að þakka fyrir allar hamingjuóskirnar sem þið kæru lesendur senduð mér í tilefni útskriftardagsins.
Það er svo mikið að gera hjá manni að það er ekki tími til að blogga enda á ekki að hanga í tölvu þegar veðrið er svona frábært. Sól og hiti í marga daga en í dag er rigning og það er voða gott að fá smá vætu ef hún stendur ekki fram á haust. Ég er bara í frí og hef heimsins mesta tíma á meðan Jóhannes og Melkorka Mjöll vinna og vinna en ég er nú góð við þau þegar þau koma heim. Nú er ég að fá nýja myndavél þar sem hin eyðilagðist og nú fæ ég NIKON D80 og er ánægð með það, var að vona að ég fengi far fyrir hana austur í dag....er svo spennt. Svo eru nýju hlaupaskórnir komnir og það er bara glæsilegt. Ég fékk svo frábært hlaupaprógramm til að fara eftir og það er að virka mjög vel.
Svo kemur Erla systir til mín á mánudaginn og ætlar að vera í tvær vikur, líf og fjör hjá okkur.

Læt fylgja með mynd af nýju skónum.....hehehe.




Skrifað 3.7.2009 kl. 12:08 af Jóhönnu H

Bein slóð á færslu

8 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

clockhere
Flettingar í dag: 32
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 248
Gestir í gær: 55
Samtals flettingar: 429481
Samtals gestir: 165540
Tölur uppfærðar: 14.3.2010 08:40:04