Blogg
30.10.2008
Ó Reykjavík......
Nú er vikan að verða búin og ég búin að afreka nokkuð mikið, smíða bæði úr tré og silfri, borða hammara, pítu og nammi gott, hlaupa úti og synda svo enginn tími hefur farið í heimsóknir en ég fer sko heim seinni partinn á morgun jafnvel ekki fyrr en um kvöldmat, klára rest af verkefnum heima. Við fórum nokkur á Pítuna í dag í hádeginu, hittum þar gesti og borðandi fólk. Einnig fór ég í myndavélabúð og fékk að máta linsu á vélina mína og prufa að taka mynd, vá það var flott. Annars er allt í góðum gír hér. Sjáumst á Fásk.
Reykjavík í dag.
Þarna erum við á Pítunni, þetta er borðið sem ég þreif til að hjálpa starfsfólkinu.
27.10.2008
Eldur
Nú rétt í þessu kom upp eldur í einhverjum skúr hér fyrir framan eldhúsgluggann hjá Örvari og Pétri. Ég tók þessar myndir og minna þær nú helst á jólin hvað ljósin varðar en þetta slys er hræðilegt þar sem sex ungmenni voru flutt á slysadeild með brunasár, vona að þau nái sér fljótt.

27.10.2008
Skál
Hér er svo skálin sem ég var að renna, skálin er úr birki. Byrjaði svo á skáp í dag sem er langt kominn.
26.10.2008
Reykjavík
Jæja þá er frúin komin til Reykjavíkur, keyrði suður í gær í allskonar veðri og færð en þegar maður er á svona góðum bíl þá klikkar næstum ekkert. Fór í smíðina í morgun kl: 9 og var þangað til 4, renndi eina glæsilega skál sem þið fáið að sjá hér þegar hún er alveg tilbúin. Eftir það fór ég út að hlaupa og svo í sund og nú er ég að elda handa litlu strákunum mínum enda verður maður að borga fyrir gistinguna.
Hafið það gott.
Hafið það gott.
23.10.2008
Appelsínugulur morgunn.
Svona var um að litast í morgun á Fáskrúðsfirði.
clockhere
Flettingar í dag: 114
Gestir í dag: 38
Flettingar í gær: 113
Gestir í gær: 44
Samtals flettingar: 430610
Samtals gestir: 165886
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 20:14:16

