Blogg
28.9.2008
Sjóferð í dag
Við hjónin skruppum sjóferð í dag, sérstaklega fyrir mig til að taka myndir, ekki til að veiða enda engan fisk að fá á stöng í firðinum. Veðrið var yndislegt eins og ávallt í firðinum fagra.
Jónína til hamingju með daginn í dag.

Jónína til hamingju með daginn í dag.
Hús KFFB.

Skrúðurinn.

Smábátahöfnin.
Smábátahöfnin.
27.9.2008
Laugardagur
Gott að fá þurrk í dag fyrir þvottinn en ekki hefur verið mikið um þurrk undanfarið. Nú í kvöld er veðrið yndislegt og væri nú gaman að fá sér göngutúr.
Ég fór í smíðastofuna í morgun og síðan skruppum ég, Anna Þóra og Melkorka á Reyðarfjörð til að sýna okkur og sjá aðra. Svo var farið aftur í smíðastofuna.....nú er ég farin að skilja Emil í Kattholti, það er þess virði að gera næstum allt til að geta verið í smíðahúsinu...hehe.
Annars hefur allt gengið vel í vikunni, allir ánægðir með fjallgönguna, bæði stórir og smáir.
Hafið það gott.

Mynd tekin kl: 18:30 í kvöld.
22.9.2008
Hringekja
Það er orðið langt á milli blogga hjá mér en það er svona þegar mikið er að gera, gott að hafa einn sem minnir mann á bloggleysi, takk Hafdís alltaf gott þegar einhver saknar manns. Helgin fór í smíðastofuvinnu þ.e. að vinna mín verkefni sem ég á að skila í næstu innilotu í skólanum en hún er eftir mánuð, ég komst allavega af stað og það er nú gott. Svo var Melkorka með pizzapartý á laugardagskvöldið og bauð 10 unglingum, það var fjör og mikið borðað. Á morgun er GF að fara í fjallgöngu ef veður leyfir og vona ég svo sannarlega að það verði, veit ekkert betra en að vera úti með nemendum. Ég og Elsa förum með einn hóp af unglingastiginu en þeim er skipt í þrennt. Síðan fara Ys og Mis annað eins og sést hér að neðan. Gott að kíkja inn á skólasíðuna og sjá hvað þarf að hafa í huga þegar farið er í fjallgöngu.
Í dag átti ég frábæra stund með hluta af unglingastiginu í Hringekjunni en það er valtími sem býður unglingunum að kynnast því sem lífið hefur upp á að bjóða. Maria Johanna van Dijk sjúkraþjálfari kom til okkar og kynnti nudd.

Yngsta stig - Gengið upp á Engihjalla, farið frá skólanum.
Miðstig - gengið yfir Staðarskarð.
Elsta stig - Gengið milli Búða og Þernuness um Breiðdalsskarð.
Í dag átti ég frábæra stund með hluta af unglingastiginu í Hringekjunni en það er valtími sem býður unglingunum að kynnast því sem lífið hefur upp á að bjóða. Maria Johanna van Dijk sjúkraþjálfari kom til okkar og kynnti nudd.
Í tásunuddi undir leiðsögn Maria Johanna van Dijk.
Svo var búin til nammiterta og borðuð á stuttum tíma.
16.9.2008
Hvalur
Í morgun sáum við hval hér í firðinum. Við fórum með Miðstigið niður í fjöru og þau sáu hvalinn en þegar við fórum með Yngsta stigið hafði hann fært sig utar í fjörðinn svo þau sáu hann ekki. En hér eru tvær myndir sem ég tók.
12.9.2008
Blogg
Já það er rétt hjá þér Hafdís mín...langt síðan síðast og takk fyrir að sakna bloggsins. Það er alltaf svo mikið að gera að það er nú ekki venjulegt en þetta verð ég að bæta.
Í síðustu viku var ég í Reykjavík í Háskóla Íslands (áður Kennó) og var að smíða frá morgni til kvölds og það var bara gaman en ég verð að viðurkenna það að ég var pínu þreytt á föstudeginum en þá fór að styttast í ferðina heim. Ég keypti líka nýjan bíl í borginni og kom á honum heim...eðal kerra, Ford Escape árgerð 2006.....já maður tekur allt með trompi. Jóhannes er búin að klára þakið svo nú heldur húsið vatni og vindi.
Vinnan komin á fullt og námið líka, stefni á að klára allt í vetur nema lokaverkefnið mitt, klára það næsta haust. Var að koma af kennaraþingi í dag en það var á Eiðum og var mjög gaman, alltaf gaman að hitta aðra kennara fá að heyra hvað þeir eru að vinna í sínum skólum og öfugt.
Gangið hægt um gleðinnar dyr.

Jökulsárlón á heimleiðinni.

clockhere
Flettingar í dag: 19
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 145
Gestir í gær: 53
Samtals flettingar: 430660
Samtals gestir: 165909
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 06:42:46